Hrafnkell Orri Egilsson 07.04.1974-
<p>Hrafnkell Orri lauk burtfararprófi í sellóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1996 undir handleiðslu Gunnars Kvaran og Diplom-prófi frá Tónlistarháskólanum í Lübeck í Þýskalandi 2002, þar sem aðalkennari hans var prófessor Prof. Ulf Tischbirek. Hrafnkell Orri var einnig nemandi Jean-Marie Gamards við Conservatoire National Superieur í París um tíma.</p>
<p>Hrafnkell Orri var styrkþegi Minningarsjóðs Jean-Pierre Jacquillat árið 2000. Veturinn 2000-2001 var hann fastráðinn sellóleikari við Fílharmoníusveitina í Lübeck. Auk þess að starfa við Sinfóníuhljómsveit Íslands er Hrafnkell Orri meðlimur í Kammersveit Reykjavíkur. Hann hefur einnig komið fram með CAPUT-hópnum og á Sumartónleikum í Skálholti.</p>
<p>Hrafnkell Orri er stofnandi Salonhljómsveitarinnar L'amour fou sem haldið hefur tónleika víða á síðustu misserum.</p>
<p align="right">Textinn er af vef Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2013.</p>
Tengt efni á öðrum vefjum

Sellóleikari og útsetjari | |
Ekki skráð | |
Ekki skráð |
Jón Hrólfur Sigurjónsson uppfærði 13.11.2013