Foreldrar: Rudolf Theil Hansen klæðskerameistari Siglufirði, síðar í Reykjavík (f. 10. ágúst 1897, d. 21. nóvember 1982) og kona hans Margrét Finnnbjörnsdóttir (f. 10. apríl 1898, d. 20. október 1984).

Námsferill: Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1956. Nám í fiðluleik við Staatliche Hochschule für Musik í Köln, Þýskalandi; kennarapróf þar 1968. Cand. phil. í tónvísindum 1972 frá Albertus Magnus Universität í Köln.

Starfsferill: Kennari í Þýskalandi 1968-1975. Skólastjóri Tónlistarskólansi í Görðum, Garðabæ 1975-1984; Tónlistarskóla Vesturbæjar, Reykjavík frá 1984.

Kennaratal á Íslandi. III. bindi, bls. 18.

Staðir
Tengt efni á öðrum vefjum