Ástríður Alda Sigurðardóttir hóf nám í píanóleik 6 ára gömul hjá móður sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Vorið 1999 lauk hún einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000-2003 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University – Jacobs School of Music í Bloomington þar sem hún lauk Artist Diploma með hæstu einkunn.

Ástríður hefur sótt fjöldann allan af námskeiðum, og tímum í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler.

Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum. Þá hefur hún komið fram sem einleikari með Internationales Jugendsinfonie-orchester Elbe-Weser í Þýskalandi, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.

Ástríður er meðlimur í Elektra Ensemble sem var m.a. tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og tangósveitinni Fimm í tangó sem flytur finnska og íslenska tangótónlist.

Á síðasta ári gaf Ástríður út sólóplötuna CHOPIN sem inniheldur fjórar ballöður tónskáldsins auk sónötunnar í b-moll en einnig hefur komið út geisladiskurinn ALDARBLIK með henni og söngvurunum Eyjólfi Eyjólfsyni og Ágústi Ólafssyni.

Af vef Tónlistarhátíðar unga fólksins 29. september 2013.

Hópar
Skjöl
Tengt efni á öðrum vefjum