Jón Oddsson Hjaltalín 1749-25.12.1835
Prestur. Stúdent frá Skálholtsskóla 1776. Tók við Hálsi í Hamarsfirði 7. apríl 1777, fékk Kálfafell 12. júlí 1780, fékk Hvamm í Norðurárdal 9. júní 1783. Síðan fékk hann Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 1786 og Breiðabólstað á Skógarströnd 1811 og fékk líka Helgafell en afþakkaði það og sagði af sér prestskap á Breiðabólstað 1. febrúar 1835. Jón fékk lof í öllum greinum og Hannes biskup sagði hann hafa glæsilegar gáfur. Hann hefur ort mörg kbæði og sálma. Hann samdi sögur og rímur.
Heimild: Íslenskar æviskrár PEÓ III bindi, bls. 154-55.
Staðir
Hálskirkja | Prestur | 1777-1777 |
Kálfafellskirkja | Prestur | 1777-1783 |
Hallgrímskirkja í Saurbæ (Hvalfjarðarströnd) | Prestur | 1786-1811 |
Hvammskirkja | Prestur | 1783-1786 |
Breiðabólstaðarkirkja Snæfellsnesi | Prestur | 1811-1835 |
Gunnlaugur V. Snævarr uppfærði 1.09.2014