Spilmenn Ríkínís Miðaldatónlist
Spilmenn Ríkínís er fjölskylduhljómsveit. Æfingar hafa farið fram í borðstofu í vesturbæ Reykjavíkur en einnig í Garðshorni í Ólafsfirði, á Hólum í Hjaltadal og Kongegården í Korsør í Danmörku. Fyrstu tónleikar Spilmanna Ríkínís voru á tónlistarhátíðinni Berjadagar í ágúst 2006. Þeir hafa síðan komið fram á fjölda tónleika, norðan heiða og sunnan. Viðfangsefni Spilmanna hefur verið flutningur tónlistar úr gömlum íslenskum bókum og handritum með hljóðfærum sem vitað er að til voru á Íslandi fyrr á öldum. Hvort tónlistin hljómar eins og þá er alls óvíst, en sá hljómur sem verður til þegar sungið er og leikið á þessi gömlu hljóðfæri kveikir tilfinningu í brjóstinu, líkt og sofinn strengur sé sleginn á ný. Líkt því sem við göngum til móts við veruleika sem alltaf hefur búið með okkur en við þekktum þó ekki.
Meðlimir:
- Ásta Sigríður Arnardóttir
- Halldór Bjarki Arnarson
- Sigursveinn Magnússon
- Marta Guðrún Halldórsdóttir
- Örn Magnússon
Af FaceBook-síðu Spilmanna Ríkínís.
Meðlimir
Nafn | Staða | Frá | Til | |
---|---|---|---|---|
![]() |
Halldór Bjarki Arnarson | 2006 | ||
![]() |
Marta Guðrún Halldórsdóttir | 2006 | ||
![]() |
Sigursveinn Magnússon | 2006 | ||
![]() |
Örn Magnússon | 2006 |
Tengt efni á öðrum vefjum
Jón Hrólfur Sigurjónsson uppfærði 20.07.2015